Samkvæmt 20. gr. fjarskiptalaga nr. 81/2003 er Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) skylt að hafa eftirlit með gjaldskrám fyrir alþjónustu. Stofnunin á að sjá til þess að alþjónusta sé veitt á eðlilegu og viðráðanlegu verði og fylgjast með því að verðþróun sé í samræmi við kaupmátt innan lands. Auk þess má hafa hliðsjón af verðlagningu í viðmiðunarríkjum.
Til alþjónustu í fjarskiptum heyrir m.a. talsímaþjónusta, rekstur almenningssíma og upplýsingaþjónusta um símanúmer 118 og hvílir sú kvöð á Símanum sem fyrirtækis með umtalsverða markaðshlutdeild að veita þessa þjónustu.
Til að framfylgja eftirlitsskyldunni gerði PFS í sumarbyrjun verðsamanburð á gjaldskrám fyrir talsímaþjónustu, símtölum úr almenningssímum og símtölum í 118 hér á landi og í viðmiðunarríkjum.
Í ljós kom að verð fyrir þessa þjónustu hér á landi er innan eðlilegra marka. Gjaldskrá fyrir almenningssíma er töluvert lægri hér á landi en í Noregi og Svíþjóð og gildir þá einu hvort hringt er úr almenningssíma í fastanetssíma eða farsíma. Þá kemur fram að einnar mínútu símtal í upplýsingaþjónustuna 118 er ódýrari hér á landi en í Noregi, Svíþjóð og Danmörku, en meira en helmingi dýrari en á Írlandi og Grikklandi.
Í ljósi þessarar niðurstöðu sér PFS ekki ástæðu til að ákveða hámarksverð fyrir talsímaþjónustu, símtöl úr almenningssímum eða símtöl í 118, eins og heimild er til í 2. mgr. 20. gr. fjarskiptalaga.
- Sjá verðsamanburð (pdf-snið 25,0 KB)
- Sjá verðsamanburð breska greiningarfyrirtækisins Teligen á símkostnaði á Norðurlöndum og í OECD-löndum. Maí 2005 (pdf-snið 116 KB).
Sjá verðskrá Símans fyrir almenningssíma