Samkvæmt 51. gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003 skulu fjarskiptafyrirtæki sem reka almenna talsímaþjónustu bjóða notendum númerabirtingu í samræmi við ákvæði laga um persónuvernd. Póst- og fjarskiptastofnun er ætlað að setja reglur um fyrirkomulag númerabirtinga. Stofnunin hefur gert drög að slíkum reglum og hafa þær verið birtar á heimasíðu stofnunarinnar www.pfs.is. Drögin taka mið af 8. gr. tilskipunar 2002/58/EB um vinnslu persónuupplýsinga og um verndun einkalífs á sviði rafrænna fjarskipta
Öllum sem hagsmuna eiga að gæta þ.m.t. notendum er heimilt að senda inn umsagnir um drögin.
Óskað er eftir að umsagnir verði sendar á rafrænu formi á póstfangið sigurjon@pfs.is, en jafnframt er óskað eftir að fá frumrit til skráningar. Umsagnir verða birtar á heimasíðu stofnunarinnar. Frestur til að skila umsögnum er til og með 20. júlí nk.
Drög að reglum um númerabirtingar(PDF)(Word)
Til baka