16. janúar 2007
Þann 7. desember 2006 kynnti Póst- og fjarskiptastofnun Símanum ákvörðun sína um framlag til Símans hf. úr jöfnunarsjóði alþjónustu vegna ársins 2005. Framlagið er vegna veitingar gagnaflutningsþjónustu með 128 Kb/s flutningsgetu og skv. ákvörðun PFS nemur það kr. 18.880.079, fyrir árið
2005.
Í ákvörðun PFS er tiltekið að hún er kæranleg til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála, sbr. 13. gr. laga nr. 69/2003, um Póst- og fjarskiptastofnun. Síminn hefur kært ákvörðunina og er hún til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni.
Ákvörðun PFS um framlag til Símans hf. úr jöfnunarsjóði alþjónustu (PDF)
Til baka