Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur birt ákvörðun sína nr. 28/2015 um heildsölugjaldskrá fyrir lúkningu símtala í einstökum farsímanetum á heildsölumarkaði (markaður 7).
Í ákvörðuninni er mælt fyrir um að niðurstaða verðsamanburðar sem stofnunin hefur framkvæmt verði grundvöllur hámarks lúkningarverða Símans, Vodafone, Nova, IMC/Alterna og 365 á árinu 2016.
Samkvæmt framangreindum verðsamanburði skal hámarksverðið lækka í 1,40 kr./mín um næstu áramót. Framkvæmd og niðurstaða verðsamanburðarins er nánar lýst í ákvörðuninni.
Núverandi lúkningarverð, sem gildir á árinu 2015, var ákvarðað með ákvörðun PFS nr. 24/2014 frá 31. október 2014 en þá kvað stofnunin á um að lúkningarverð skyldu lækkuð úr 1,64 kr./mín. í 1,52 kr./mín., frá og með 1. janúar 2015.
Ákvörðun þessi byggir á ákvörðun PFS nr. 20/2015 um útnefningu fyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumörkuðum fyrir lúkningu símtala í einstökum farsímanetum (markaður 7). Samkvæmt þeirri ákvörðun skal stofnunin áfram beita verðsamanburði til að ákvarða hámarks lúkningarverð íslenskra farsímafyrirtækja eins og gert hefur verið síðustu ár.
Sjá ákvörðunina í heild ásamt viðaukum:
- Ákvörðun PFS nr. 28/2015 - Heildsölugjaldskrá fyrir lúkningu símtala í einstökum farsímanetum (Markaður 7)
- Viðauki I - Yfirlit yfir lúkningarverð
- Viðauki II - Gengistafla
- Viðauki III - Álit ESA
Til baka