4. júlí 2012
Norrænn samanburður á fjarskiptanotkun: Norðurlöndin fremst í flokki í Evrópu.

Í dag kemur út skýrsla sem fjarskiptaeftirlitsstofnanir á Norðurlöndunum hafa tekið saman um notkun helstu þátta fjarskiptaþjónustu  og þróun nýliðinna ára í löndunum fimm.  Er þetta í þriðja sinn sem slík skýrsla hefur verið gerð.  Á heildina litið er fjarskiptanotkun mjög lík í þessum löndum og íbúar þeirra nýta sér sambærilega tækni á svipaðan máta. Þrátt fyrir það má þó víða sjá einhvern mun á notkun og þróun einstakra þátta.

Hraði fastra háhraðanettenginga sem boðnar eru á Íslandi er mestur af þessum fimm löndum og mikil fjölgun á áskriftum á heimasíma yfir IP-fjarskiptanet (VoIP).  Þegar sú tækni sem fastar nettengingar byggja á er skoðuð er athyglisvert að kapaltengingar sem eru algengar á Norðurlöndum hafa ekki náð útbreiðslu hér á landi og því má segja að tæknin á aðgangsnetum sé einsleitari á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum.

Breiðbandsnotkun með farsímum, spjaldtölvum og netlyklum  er hins vegar minnst útbreidd á Íslandi, en í því sambandi ber þess að geta að útbreiðsla þriðju kynslóðar farsímaneta hófst tveimur til þremur árum fyrr í hinum löndunum fjórum.

Íslendingar virðast vera fastheldnastir Norðurlandabúa á fastlínusíma því þótt fjöldi viðskiptavina í fastlínuþjónustu haldi áfram að minnka í öllum löndunum fimm, er minnsta fækkunin milli áranna 2010 og 2011 á Íslandi, líkt og verið hefur síðastliðin ár.
Um leið eru færri farsímaáskriftir á hverja 100 íbúa á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum og meðallengd símtala í farsíma er minni hér á landi, auk þess sem við sendum færri SMS.

Í sameiginlegri yfirlýsingu sem forstjórar fjarskiptaeftirlitsstofnana landanna fimm; Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar senda frá sér í tilefni af útkomu skýrslunnar segir:

„Sú tölfræðiskýrsla sem birt er í dag sýnir að á Norðurlöndum ríkir samkeppnisumhverfi á fjarskiptamarkaði og mikil eftirspurn eftir fjarskiptaþjónustu meðal neytenda. Með útbreiðslu háhraðatenginga sem er langt fyrir ofan meðaltal innan ESB landa sést að Norðurlöndin ganga í fylkingarbrjósti hvað varðar framhald innleiðingar fjarskiptaáætlunar Evrópu.  Öll löndin fimm leggja mikla áherslu á að vera áfram leiðandi í þróun fjarskipta í Evrópu til framtíðar.“

Sjá sameiginlega fréttatilkynningu norrænu fjarskiptastofnananna:
Á ensku (PDF)
Á íslensku (PDF)

Sjá skýrsluna í heild sinni (á ensku):
Telecommunication Markets in the Nordic Countries (PDF)